Inga í Svíaríki
Ýmislegt nauðsynlegt
10.10.2008 07:20:22 / Inga

Seinasta vika...

Síðan ég skrifaði síðast höfum við sennilega keyrt ca 2400 mílur (ca 3900 km). Við erum komin til Santa Fe í New Mexico. Við reyndar vorum hér í mars 2006 og ákváðum að koma við hérna aftur þar sem þetta er mjög fallegur bær og hér er að finna besta hamborgara sem við höfum borðað. Hamborgarna er að finna á veitingarstað sem er á hóteli sem heitir Inn of the Anasazi og eru þetta vísundahakks hamborgarar.  Uhmmm þeir eru ekkert smá góðir:) 

En best að snúa sér að ferðasögunni. Við fórum frá Durham í North Carolina seinasta fimmtudag (2. október) og keyrðum niður til Wilmington í sama ríki og borðuðum hádegismat með tveimur fyrrverandi vinnufélögum hans Niklas sem vinna þar nú. Síðan keyrðum við til Charleston í Suður Karolínu (South Carolina) og sváfum þar eina nótt.  Charleston er rosalega falleg borg með fullt af fallegum gömlum húsum. Við byrjuðum svo föstudaginn á því að fara á plantekru (Boone Hall Plantation) fyrir utan borgina sem núna er safn sem sýnir líf og aðstæður þrælanna og hvernig plantekrur voru í suðuríkjunum á þrælahaldstímanum.  Ef þið hafið lesið söguna Á hverfandi hveli (Gone with the Wind) þá er umhverfið þarna alveg eins og lýst er í þeirri bók.  Ég sá fyrir mér ýmsar senur úr bókinni og ekki minnkaði líkindin við bókina þegar við héldum áfram suðureftir og keyrðum til Savannah í Georgia.  Sem er alveg eins og Chaleston rosalega falleg borg. Við eyddum einni nótt þar og skoðuðum borgina.  Seinni partinn á laugardaginn lögðum við svo af stað upp til Nashville í Tennessee. Við keyrðum sem leið lá í gegnum Atlanta í Georgia og upp til Tennessee, við stoppuðum svo eftir ca 7 tíma keyrslu og fundum okkur motelherbergi í litlum bæ sem heitir Manchester í Tennessee og sváfum þar aðfararnótt sunnudagsins.  Þegar við vöknuðum á sunnudagsmorguninn keyrðum við til Jack Daniels´s vískibruggsmiðjuna og skoðuðum hana. Þar sem það var sunnudagur var ekki hægt að fá að smakka neitt né að kaupa vískí því að sveitafélagið sem bruggsmiðjan er í er svokallað þurrt sveitarfélag og því er ekki leyfilegt að selja né veita áfengi þar.  Svolítið magnað að það megi samt framleiða áfengi í þessu sveitafélagi!!! Bruggsmiðjan hefur reyndar fengið leyfi til að selja litlar vískiflöskur til túrista alla aðra daga en sunnudaga (týpískt að við skyldum vera þar á sunnudegi).  En  það var bara mjög gaman að sjá verksmiðjuna.  Við keyrðum svo upp til Nashville og vorum komin þar seinnipartinn og svo heppilega vildi til að þar voru útitónleikar þar í almenningsgarði niður við Cumberland ánna sem rennur í gegnum borgina.  Þannig að við gátum notið kántrýtónlistarinnar á meðan við gengum um miðbæinn og skoðuðum okkur um. Okkur fannst borgin ferlega skemmtilega og mjög flottur miðbær með fullt af veitingarstöðum og börum og greinilega oftast mikið um að vera þar. Við sáum nokkra ekta kántrýsöngvara ganga um í cowboy stígvélunum með cowboy hattinn og gítarinn:)  Á mánudaginn kvöddum við svo Nashville og kántrýtónlistina til að fara til rokk og blús mekkans í Memphis.  Við urðum reyndar fyrir svolitlum vonbrigðum með Memphis, maður fékk rosalega mikið á tilfinninguna að ein af aðalgötunum (Beale Street) þar væri bara fyrir túristana og væri svolítið feikuð. En við getum allavegna sagt að við höfum drukkið bjór á BB King Blues Club, þar sem BB King spilaði á árum áður.  Við ætluðum svo að ganga frá Beale Street til safns (National Civil Rights Museum) sem hefur verið sett upp þar sem Matin Luther King, Jr var skotinn til bana.  En við snérum við eftir að hafa gengið í nokkrar mínútur og vorum komin nokkrar götur frá aðalgötunum, þar sem umhverfið var orðið frekar skuggalegt og í frekar mikilli niðurníslu. Okkur leyst ekkert á að halda áfram fótgangandi og ákváðum að við skyldum frekar bara fara á bílnum þangað daginn eftir.  Ég var svo að kíkja á wikipedia síðuna um Memphis núna og sá þá að hún var rönkuð sem önnur hættulegasta borgin með fleiri en 500000 íbúa í Bandaríkjunum árið 2007, þannig að við erum bara ferlega fegin að hafa snúið við:/  Við sváfum eina nótt í úthverfi Memphis og fórum svo á þriðjudag til Graceland (sem er í úthverfi Memphis) þar sem Elvis bjó.  Það var magnað að koma þangað og skoða allt. Við héldum bæði að húsið og búgarðurinn væri stærri en hann er.  Við vorum rosalega heppin því að þegar við vorum búin að skoða allt þar þá byrjaði sko að rigna og hefðum við ekki getað skoðað neitt utandyra ef það hefði rignt eins og það gerði á meðan við vorum að skoða allt.  Við keyrðum svo aftur inn í Memphis og keyrðum að Martin Luther King safninu en vorum komin með nóg af safnaskoðun eftir Graceland svo við fórum ekkert inn og vildum heldur ekki skilja bílinn eftir á götunni þarna þar sem umhverfið í kringum safnið gefur manni virkilega ekki neina öryggistilfinningu.  Þannig að við kvöddum bara borgina og keyrðum yfir Mississippi ánna og héldum í vesturátt.  Við keyrðum til bæjar sem heitir Forth Smith í Arkansas og sváfum þar eina nótt og keyrðum svo þaðan í gær til Amarillo í Texas og sváfum þar síðastliðna nótt. Það er alveg magnað að koma þangað, þegar við stigum útúr bílnum tók á móti okkur þessi líka ekkert litla kúaskítslykt!!!  Það var virkilega eins og maður væri komin inní fjós, ég er ekki að grínast!!!  Og þessi lykt er bara útum allt þarna enda svo sem ekkert lítið af nautgripum þarna.  Þó að í borginni búi u.þ.b 180 þúsund manns þá er blessuð kúaskítslyktin útum allt og meirasegja í miðbænum, alveg magnað.  Í morgun fórum við svo á safn um ameríska hestinn og svo í lítinn þjóðgarð (Palo Duro Canyon) sem er í þarna í nágrenninu, mjög fallegur lítill þjóðgarður. Við kíktum svo á listaverk sem er fyrir utan borgina og er gert úr 10 cadiallac bílum sem eru grafnir hálfir niður í jörðina og mega vegfarandur koma með spreybrúsa eða málningu og mála á þá. Þetta listaverk var gert 1974 og er komið þykkt lag af málningu á alla bílana.  Við keyrðum svo sem leið lá hingað til Santa Fe í New Mexico.  

Kær kveðja frá okkur ferðalöngunum:)

Hrabba skrifaði
... og ég sem hélt að suðurríkin væru bara þurr á sunnudögum!! Og finnst mér leitt að lesa þetta með Memphis - samt eitthvað svo týpiskt fyrir "fræga" borg að vera svo bara einhver skítur fyrir utan þetta eina fræga, soldið líkt og Las Vegas kannski ;) Góða ferð áfram, ég bíð alltaf spennt eftir ferðasögunum :D
Guðrún skrifaði
það er ekkert smá sem þið ferðist :) Maður verður örugglega líka að stoppa stutt á hverjum stað til að vera ekki allt of leng að komast á leiðarenda :) En þetta er ekkert smá huggulegt hjá ykkur, gæti vel hugsað mér að gista á þessu hóteli sem selur hamborgarana, rosalega kósí myndirnar af því ;)
Ella guðmunds skrifaði
HÆ SÆTU FERÐALANGAR,EKKERT SMÁ FERÐALEG HJÁ YKKUR.
VÆRI SVO TIL Í EINN KALDANN NÚNA, SVONA MEÐ APPELSÍNUNNI Í UMMMMMM.
hAFIÐ ÞAÐ GOTT, ALLTAF GAMAN AÐ GETA SÉÐ FERÐASÖGUNA YKKAR HÉRNA, GOTT AÐ VITA AÐ ÞIÐ ERUÐ ÞARNA EINHVERSSTAÐR;)

KNÚS ÚR NESINU
Svanfríður skrifaði
Þið notið tímann vel sé ég-gott hjá ykkur og gaman að lesa söguna. Gangi ykkur vel áfram og ég hlakka til að lesa meira.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagsetning
20. mars 2010
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 451 dögum
Aðfangadagur
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 46196