Í gærmorgun fylltum við bílinn af farangri og dóti sem við tókum með okkur á ferðalagið. Við síðan skiluðum íbúðinni af okkur í gær eftir að hafa þrifið hana og fengum við meira að segja hrós fyrir hversu vel við þrifum hana
Síðan lá leið okkar í bankann okkar, til Comcast (netfyrirtækið) til að skila af okkur módeminu frá þeim, í tvær búðir til að kaupa smá dót og svo brunuðum við frá Groton!!! Það var svolítið skrýtin tilfinning að keyra út úr bænum sem við höfum búið í seinustu 3-4 1/2 árin (ég í 3 ár og Niklas í 4 ½ ár), en samt vorum við mjög fegin að komast loksins af stað og að vera að flytja frá Groton. Góðir vinir okkar sögðu eimitt að “besta útsýnið yfir Groton væri í aftursýnisspeglinum”!! Síðan lá leið okkar upp í skóla til mín þar sem ég þurfti að ná í pappíra þar, í leiðinni fórum við og skiluðum númeraplötunum á bifreiðaskráningarstofuna og afskráðum Volvo S40 bíl sem ég hef verið á síðastliðin 3 ár. Dr. Risatti (prófessorinn minn) keypti nefnilega þann bíl af okkur. Ég verð að segja að það var svolítið eins og að selja hestinn sinn að skilja við bílinn, en við vorum mjög ánægð að Risatti skildi kaupa hann og að hann færi á gott heimili (guð nú hljóma ég alveg eins og að bílinn hafi verið kært gæludýr en málið er að þetta var bara svo ótrúlega góður bíll og ekkert smá gott að keyra hann).
En alla vegna þegar við vorum búin að öllum erindum og þá var klukkan orðin nærri því fjögur og vorum við orðin frekar framlág eftir að hafa verið að þrífa fram á nótt og vaknað svo eldsnemma til að klára að þrífa íbúðina áður en við áttum að skila henni af okkur. Við ákváðum því að gista bara hjá einni vinkonu okkar og leggja frekar af stað í morgun.
Við vöknuðum því í kringum klukkan sex í morgun og vorum komin útí bíl um klukkan sjö og keyrðum af stað áleiðis til Washington, DC. Það að leggja svona snemma af stað var með ráðum gert til að sleppa við verstu umferðina þegar við færum í gegnum New York og New Jersey og svo líka til að vera komin til Washington í kringum þrjú og geta því notað daginn í dag til að skoða okkur aðeins um hér. Keyrslan gekk mjög vel og ég er bara frekar stolt af mér fyrir að geta sagt núna að ég hef keyrt í New York City (þar sem umferðin er frekar klikkuð) og svo líka er ég búin að keyra í miðbæ Washington
Ferðin hingað niður eftir tók ca 8 klukkutíma með hádegis stoppi. Við hentum svo dótinu okkar inn á hótel og keyrðum niður miðbæinn til að skoða Hvíta húsið, Washington minnismerkið (Washington Monument), Lincoln minnismerkið (Lincoln National Memorial) og fleiri minnismerki. Síðan enduðum við daginn á að fara bar, sem heitir Capitol City Brewing Company og býður upp á sinn eiginn bjór og fá okkur að borða. Mjög góður bjór og matur, þannig að ég get mælt með þessum stað ef þið einhvern tíman farið til Washington, DC.
Núna ætla ég að fara að skrýða upp í rúm og horfa á endirinn á fyrstu kappræðunum á milli Obama og McCain. Áfram Obama!!!
Ég set seinna inn myndir frá deginum í dag.
Knús í bili frá okkur ferðalöngunum.